|
Týnda hjúkkan Totally lost þessa dagana |
|
Um migÉg heiti Brynja Dögg Jónsdóttir og er 23 ára. Ég er fædd og uppalin í Kelduhverfi í Öxarfirði þar sem við bjuggum á bóndabýli. Við áttum kindur, hænur, hunda og hesta þannig að það má segja að ég hafi alist upp í svolítið öðruvísi umhverfi en flestir krakkar í dag og ég er mjög þakklát fyrir það. Þegar ég var 15 ára ákváðu foreldrar mínir að flytja í Sandgerði og þar kláraði ég 10 bekkinn. Margir halda að það hafi verið erfitt að flytja og koma inn í nýjan skóla í 10 bekk en það var það ekki. Ég kynntist alveg frábæru fólki og það gerði það að verkum að mér leið mjög vel í Sandgerði. Eftir 10 bekkinn lá leiðin inn í FS eða fjölbrautaskóla Suðurnesja og þar upplifði ég margar að mínum bestu stundum. Ég kláraði skólann um jólin 2003. Útskriftarbekkurinn það ár ákvað að gera eitthvað nýtt þannig að við settum stefnuna á Tæland. Það er BARA GAMAN að koma þangað. Eftir að FS lauk byrjaði ég í Íslensku við Háskóla Íslands og var í eina og hálfa önn eða þangað til ég uppgötvaði að þetta var ekki það sem ég vildi læra þanning að leiðin lá út á vinnumarkaðinn. Ég fékk vinnu í farþegaþjónustu IGS á Keflavíkurflugvelli, þessi deild fæst við að innrita farþega, veita upplýsingar á þjónustuborðum og sjá um vélar út og inn. Það leið ekki á löngu þar til að hugljómunin kom. Ég átti að verða hjúkrunarfræðingur. Stefnan var sett á Háskólann á Akureyri. Þar hóf ég nám í hjúkrunarfræði haustið 2005 en ég komst fljótlega að því hvað það er að vera í klásus. Fyrir ykkur sem ekki vitið hvað klásus er þá er það svokallað samkeppnispróf eða með öðrum orðum þá byrja um 70 - 80 nemendur og aðeins 38 komast í gagn og fá að halda áfram. En alla vega þá var pressan svo mikil, og það er mjög auðvelt að brotna undan pressu, ég var greinilega ekki undir þetta búin því ég komst ekki inn. Ég fór þá aftur upp á flugvöll í afgreiðsluna, en ég var langt frá því að gefast upp, stefnan var sett á HA um haustið í hjúkrunarfræði og þar er ég í dag að reyna að komast inn. Ég er mjög vongóð og bjartsýn en það að sjálfsögðu hjálpar til við að komast í gegn um þetta víti. Ég hef lært það að gefast upp er ekki valkostur, what doesn´t kill you makes you stronger Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 3 Gestir í gær: 2 Samtals flettingar: 21631 Samtals gestir: 11537 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 09:22:59 |
Um mig Nafn: Brynja Dögg JónsdóttirTölvupóstfang: brynjus_@visir.isMSN netfang: brynjus_@visir.isAfmælisdagur: 17 AprílMySpace vefsíða: www.myspace.com/brynjusjTenglar
|